Í áfanganum er fjallað um kerfisbundna grunnþjálfun,, snerpu og hraðaþjálfun og hvernig megi bæta þessa þætti. Einnig fjallað um tækni og samhæfingu í íþróttum. Að auki fjallað um skipulagningu þjálfunar sem miðar að því að nemendur fái alhliða hreyfireynslu sem reyni á alla helstu vöðvahópa líkamans þar sem fjölbreytni og ánægja er höfð að leiðarljósi.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnþjálfun sem hugtaki í þjálfun
hugtökunum snerpa og hraði
hugtökunum samhæfing og tækni
hvíld og gildi endurheimtar fyrir þjálfun
gerð þjálfáætlana
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meta eigin líkamsástand
útbúa æfingaáætlun sem miðast við að bæta grunnþjálfun viðkomandi
útbúa æfingaáætlun sem miðast við að auka auka snerpu og hraða
tileinka sér nýja tækni í íþróttum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leysa af hendi verkefni, æfingar og leiki sem bæta tækni í íþróttum
framkvæma æfingaáætlun sem miðast við að bæta grunnþjálfun viðkomandi
framkvæma æfingaáætlun sem miðast við að auka auka snerpu og hraða
nýta sér upplýsingatækni við alhliða líkams- og heilsurækt og mat á eigin heilsu
Eitt verkefni, eitt próf og auk þess þarf að skila vinnubók. Verkefni og upplýsingar er hægt að nálgast á Moodle.