Nemendur fá trausta þekkingu á tiltekinni íþróttagrein og eru búnir undir þjálfunar- og leiðbeinendastörf hjá íþróttahreyfingunni, í frjálsri félagastarfsemi eða í frístundastarfi.
Gert er ráð fyrir að hægt sé að kenna íþróttagrein sem sérstakur áhugi er á eða hentar vel aðstæðum eða einstökum skólum.
Dæmi um íþróttagreinar:
- Badminton
- Borðtennis
- Fimleikar
- Fjallganga
- Frjálsar íþróttir
- Glíma
- Golf
- Hjólreiðar
- Júdó
- Karate
- Ólympískar lyftingar
- Skautar
- Skíði
- Skvass
- Sund
- Tae kwondo
- Tennis
- Þríþraut
ÍÞRF2ÞJ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig beri að leiðbeina börnum og unglingum um undirstöðuatriðin í viðkomandi grein
helstu þjálfunaraðferðum í íþróttagreininni
þeim mun sem er á þjálfun barna og fullorðinna í greininni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
stunda íþróttagreinina og öðlast góðan tæknilegan grunn í greininni
taka þátt í fjölbreyttum æfingum og leikjum sem tilheyra greininni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja þjálfun í íþróttagreininni fyrir börn og unglinga
nýta sér upplýsingatækni við skipulagningu þjálfunar
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.