Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1354205993

    Aðstoðarþjálfun
    ÍÞST3AÐ03
    1
    starfsnám í íþróttum
    aðstoðarþjálfun, æfingaáætlun, íþróttakennsla
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    Þessi áfangi er hugsaður sem undirbúningur fyrir starf í íþrótta- eða frístundaskóla fyrir börn á aldrinum 4-12 ára eða í íþróttastarfi/frístundastarfi hjá íþróttafélögum, fyrir sama aldurshóp. Nemandinn mun setja upp æfingaáætlun í samráði við íþróttaþjálfara/kennara. Hann mun síðan þjálfa/kenna með íþróttakennara eða þjálfara. Æfingaáætlun og kennsla er metin í lok æfingakennslutímabils. Miðað er við 60-70 klukkustunda vinnu nemanda undir stjórn þjálfara yfir eina önn.
    ÍÞRF2ÞJ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • kennslu og þjálfun barna og unglinga á aldrinum 4-12 ára
    • helstu forsendum áætlanagerðar í íþróttum
    • hlutverki íþróttaþjálfara sem fyrirmyndar barna og unglinga
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leiðbeina börnum og unglingum í í tækniatriðum ýmissa íþróttagreina
    • kynna nýja leiki og æfingar fyrir æfingahóp barna og unglinga
    • hafa jákvæð og örvandi samskipti við æfingahópa sína
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • kenna börnum og unglingum ýmsa leiki og grunnæfingar í íþróttum undir stjórn íþróttakennara/þjálfara
    • halda uppi góðum aga og virkni í sínum æfingahópi
    • nýta sér upplýsingatækni við skipulagningu þjálfunar sinna æfingahópa í samráði við íþróttakennara/þjálfara
    Til að fá þjálfun fyrir íþróttafélög metna sem ÍÞS áfanga þurfa nemendur M.E að skila inn eftirtöldum gögnum: 1. Skýrsla um þjálfunarhópinn: Þar komi fram aldurssamsetning hópsins, hvaða íþróttagrein verið er að þjálfa, áætluð geta hópsins og hvaða þætti þurfi helst að bæta. 2. Dagatal yfir þjálfunartímabilið: Þarna kemur fram fjöldi æfinga á tímabilinu, ásamt leikjum og mótum, ef einhver eru. 3. Tímaseðlagerð: Nemandi skilar 6 tímaseðlum fyrir 3ja mánaða tímabil, eða einn tímaseðil fyrir hvern hálfan mánuð. Á tímaseðlinum komi fram markmið æfingar, upphitun, meginhluti og niðurlag æfingar. 4. Staðfesting yfirþjálfara á að umrædd þjálfun hafi átt sér stað, með stuttri umsögn um störf þjálfarans á umræddu tímabili.