Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1354618093

    Afreksþjálfun í körfuknattleik
    KÖRF1AÞ03
    1
    körfuknattleikur
    afreksþjálfun í körfuknattleik
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Um afreksíþróttaáfanga er að ræða, þar sem nemandinn æfir sína íþrótt 6 – 8x í viku með fullu skólanámi. Nemendur geta tekið hann sem stigvaxandi afreksþjálfun í alls 8 skólaannir jafnhliða æfingum með sínu félagsliði, eða sem einstakan áfanga inn í óbundið val. Lögð er áhersla á að vinna með einstaklinginn með það markmið að efla tæknilega getu hans í körfuknattleik. Sett eru skýr einstaklingsmarkmið í upphafi áfangans, byggð á mælingum og mati kennara. Að þeim er síðan unnið með skipulegum hætti út önnina. Árangur nemandans er síðan metinn á grundvelli þeirra mælitækja sem notuð eru. Nemendur áfangans gangast undir mikið æfingaálag. Strangar mætinga og agareglur gilda jafnframt í áfanganum, með það að markmiði að nemandinn finni það skýrt hvað þurfi til þess að verða afreksíþróttamaður í fremstu röð. Nemendur skrifa undir samning um bann á notkun hvers kyns vímuefna. Brot á þeim samningi veldur brottvísun úr áfanganum, að undangenginni aðvörun og tilraunum til úrbóta.
    engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim aga sem til þarf til að ná árangri í afreksíþróttum
    • lífsstíl í samræmi við kröfur afreksíþrótta
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • auka tæknilega færni sína í körfuknattleik
    • bæta andlegt og líkamlegt ástand sitt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tileinka sér heilbrigt líferni og átta sig á hversu miklu það skiptir fyrir afreksíþróttafólk
    • setja sér raunhæf markmið og gera sitt besta til að ná þeim, gegnum markvissa ástundun
    • spila körfuknattleik í öðrum flokki eða meistaraflokki með keppnisliðum
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.