Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1355499671

    Litafræði-formfræði-myndbygging
    SJÓN2LF05
    1
    sjónlistir
    formfræði, litafræði, myndbygging
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Nemendur læra um vægi forma og hlutfalla í mynd á fleti og í rými. Þeir kynnast sjónrænum áhrifum þessara þátta og aðferðum við að nota þau áhrif meðvitað í myndbyggingu. Unnið er að æfingum í myndbyggingu með mismunand útfærslum. Kannaðar eru mismunandi aðferðir, þar sem fjallað erum jafnvægi, ójafnvægi, léttleika og þunga, samstæður og andstæður lita og forma. Kannaðar eru særðir og hlutföll forma í rými og í lok áfangans er unnið frá tvíviðri formfræði yfir í þrívídd. Verkefni í myndbyggingu eru einnig tengd dæmum úr listasögu og umhverfi samtímans. Nemendur vinna í skissubók, skrá framvindu verkefna og hugmyndir sínar sem tengjast námsefni skriflega, með skissum og ljósmyndum. Einnig vinna nemendur með litablöndun, mynstur og form. Nemendur blanda liti með tilliti til litatóna, ljóss og dimmu. Kannaðir eru eiginleikar litanna í notkun þeirra, vægi og áhrif þeirra innbyrðis sem út á við og frá sem flestum sjónarhornum. Kannaðar eru andstæður og samstæður í litum. Samtímis litablöndun og tilraunum eru tekin dæmi um notkun lita og myndbyggingar með dæmum úr lista- og hönnunarsögu frá ýmsum tímum.
    engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • forsendum óhlutbundinnar myndbyggingar
    • afstöðu hluta og stærðarhlutföllum á blaði
    • þáttum eins og jafnvægi og þunga forma og lita
    • túlkun hugmynda með einföldum línum og formum í mynd
    • klassískum fegurðarlögmálum og notkun þeirra í myndlist, hönnun og byggingarlist
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita litum til að ná fram mismunandi áhrifum
    • nýta sér andstæðuliti til að ná fram áhrifum
    • beita litum á einföld form til að ná fram mismunandi áhrifum
    • beita andstæðum skærra og dempaðra lita
    • nota mismunandi efni til að ná fram ólíkum áhrifum og áferðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nota og meðhöndla mismunandi efnistegundir bæði í tvívíðum og þrívíðum verkum
    • greina út frá táknfræðilegum forsendum hvaða áhrif mismunandi litir og mismunandi efni hafa
    • rökstyðja skoðun sína um málefni sem tengjast mismunandi merkingu lita, forma og efnis
    • sýna fram á forsendur jákvæðrar litablöndunar ljóss
    • sýna fram á forsendur neikvæðrar litablöndunar málningar
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.