Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1358761296

    Lokaverkefni
    LOKA3VE05
    4
    lokaverkefni
    sjálfstætt verkefni
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn er unninn á síðasta námsári. Nemandi velur sér viðfangsefni og skipuleggur í samráði við leiðbeinanda. Hægt er að útfæra verkefnin á ýmsan hátt, s.s. í formi ritgerðar, vefsíðu, heimildamyndar, sýningar, tímaritsgreinar, bókagerðar, portfolio, útvarpsþáttar eða rannsóknarskýrslu. Mikil áhersla er lögð á sjálfstæð og skapandi vinnubrögð. Gert er ráð fyrir að nemandi velji efni tengt sinni braut þótt mögulegt sé að víkja frá þeirri reglu. Afrakstur allra lokaverkefna er kynntur innan ME í annarlok og birtur á heimasíðu skólans. Einnig er æskilegt að verkefnin séu gerð sýnileg í nærsamfélaginu. Áfanginn gefur möguleika á þverfaglegu samstarfi. Miðað er við að nemendur vinni lokaáfangann sem einstaklingsverkefni þótt þeir geti óskað eftir að gera það tveir og tveir saman. Hafi nemendur hug á að vinna í fjölmennari hópum þarf að rökstyðja það sérstaklega og lýsa fyrirfram hlutverki og vinnuframlagi hvers og eins.
    Nemandi skal hafa lokið 150 einingum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ákveðnu sviði faggreinar sinnar; uppbyggingu, aðferðum, hugtökum, sérkennum og sögu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skipuleggja verkefni með ábyrgum og sjálfstæðum hætti
    • sýna frumkvæði og skapandi nálgun
    • lesa fræðilegan texta og vinna úr honum samkvæmt viðurkenndum reglum um meðferð heimilda
    • beita viðeigandi aðferðum við útfærslu verkefnis
    • tjá sig á skýran, ábyrgan, gagnrýninn og skapandi hátt um eigið verkefni
    • velja viðeigandi miðlunaraðferð og beita henni af öryggi
    • taka þátt í samvinnu þegar við á
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • þróa hugmyndir og sýna sjálfstæði, áræðni og innsæi við útfærslu þeirra og túlkun
    • greina, tjá sig um og meta eigin verkefni og annara af þekkingu, víðsýni og virðingu
    • takast á við ný verkefni og breyta hugmynd í afurð
    • vera meðvitaður um styrkleika sína
    • átta sig á virði verkefnisins og menntunar sinnar fyrir samfélag og atvinnulíf
    • standa að sýningu/viðburði og miðla þar verkefnum sínum
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.