Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1361914104.51

    Þrívíð rúmfræði
    STÆR3ÞV05
    91
    stærðfræði
    keilusnið, vigrar, þrívíð rúmfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er unnið með þrívíða rúmfræði og hnitarúmfræði, stikun og ofanvarp, vigra og fylki, margflötunga og kúluhornafræði. Áhersla lögð á sannanir og notkun forrita við lausn stærðfræðilegra verkefna.
    STÆR2HV05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • línum, sléttum, hornum og fjarlægðum í þrívíðu rúmi
    • stikun og ofanvarpi
    • vigrum, fylkjum, innfeldi og krossfeldi
    • margflötungum og margflötungsreglu Eulers
    • hnitum og þríhyrningum á kúlufleti
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • finna fjarlægðir og horn í þrívíðu rúmi
    • vinna með ofanvarp og stikun
    • vinna með margflötunga
    • finna horn og lengdir í þríhyrningum á kúlufleti
    • beita hjálpartækjum og forritum við lausn verkefna
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt ...sem er metið með... skilaverkefnum og munnlegu prófi
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
    • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
    Fjölbreytilegt námsmat með áherslu á símat, tíða endurgjöf og leiðsögn. Vinna nemenda í kennslustundum er metin, lögð eru fyrir einstaklings- og hópverkefni og stutt próf eftir atvikum. Munnlegt og skriflegt lokapróf.