Nemendur kynnast undirstöðuatriðum hagnýtrar kinesiologíu. Kennt er að nota vöðvaprófanir til að meta styrk í beinagrindarvöðvum og virkni í orkubrautum. Ójafnvægi er leiðrétt með þrýstipunktum og kinesioplástri beitt til meðhöndlunar. Fjallað er um virkni plástranna og ýmsar leiðir til að leggja þá á húð.
INNU2GR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
undirstöðuatriðum hagnýtrar kinesiologíu
vöðvaprófunum
eiginleikum og virkni kinesioplásturs
hvenær sérhæfður kinesioplástur kemur helst að gagni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera vöðvapróf á 44 vöðvum
leiðrétta ójafnvægi með þrýstipunktum
sníða til og líma kinesioplástur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta styrk vöðva með vöðvaprófunum og leiðrétta jafnvægi með þrýstipunktum
meðhöndla mein með kinesioplástri
útskýra virkni kinesioplástranna fyrir hugsanlegum skjólstæðingum
beita meðferð með kinesioplástri við meðhöndlun íþróttafólks