Vefjalosun (myofacial release) snýst um losun og lengingu í bandvef. Kennd er tækni sem gerir meðferðaraðilum kleift að vinna á áhrifaríkan hátt á dýpri vefjalögum. Triggerpunktar og vefjalosunarvinna eru útskýrð og þær aðferðir notaðar til að meðhöndla mein eða svæði sem eru viðfangsefni nuddara. Nemendur læra að meðhöndla algeng mein og verki, s.s. höfuðverk, hálsstífleika eða mjóbaksverki.
KLNU3KN07
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
bandvef líkamans og vöðvafelli (fasíu)
kenningum varðandi triggerpunkta í líkamanum
sögulegri þróun triggerpunktameðferðar
meðferðarforsendum vefjalosunar
leiðniverkjum
vöðvaspólum og sinaskynjurum (golgi tendon organ)
blóðþurrð í vefjum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita djúpvefjanuddi
nota triggerpunktakort til að finna upptök leiðniverkja
teygja á bandvef með vefjalosunartækni
skynja slökun í bandvef við þrýsting eða tog
beita líkama sínum á áhrifaríkan hátt við að veita djúpt nudd með lágmarks áreynslu
nota triggerpunktameðferð á leiðniverkjasvæðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita vefjalosun á verkjasvæðum
vinna í gagnvirku samspili við vefi
útskýra leiðniverki og geta rakið sig frá einkennum til róta verkja
meta hvenær þörf er á samstarfi við aðra fagaðila að lausn vandamála, s.s. við lækna, kírópraktora eða sjúkraþjálfa