Í áfanganum er fjallað um þróun sjúklegra breytinga í mannslíkama frá frumulöskunum til sjúkdóma í líffærakerfum. Viðbrögðum frumna og vefja við álagi er lýst og hlutverki samvægisferla í viðhaldi heilbrigðis. Fjallað er um grundvallarhugtök í meinafræði eins og ónæmisviðbrögð, viðgerðarferli og vefjadrep. Fjallað er um sýkingar, erfðir og æxlisvöxt og tengsl umhverfisáhrifa og sjúklegra breytinga í líkama. Áhættuþættir, einkenni, orsakir, afleiðingar og meðferðamöguleikar algengra sjúkdóma í stoðkerfi, taugakerfi og þekjukerfi eru teknir til umfjöllunar. Latneskt nafngiftakerfi í meinafræði og sjúkdómafræði er útskýrt.
Líffæra-og lífeðlisfræði 103,203
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
algengum fræðilegum hugtökum sem tengjast efni áfangans
mikilvægi samvægis fyrir heilbrigði líkamans
þróun sjúklegra breytinga í líkama
viðbrögðum frumna, vefja, líffæra, líffærakerfa við álagi og samvægistruflunum
algengum sýkingum í mannslíkama og einkennum þeirra
samspili umhverfis-og erfðaþátta í sjúkdómsþróun
flokkun, hegðun og frumorsökum æxlisvaxtar
áhættuþáttum, einkennum, orsökum, afleiðingum og meðferðarmöguleikum algengra sjúkdóma í þekjukerfi, stoð- og taugakerfi
fjölbreyttum miðlum til þess að viðhalda og þróa þekkingu sína í sjúkdóma-og meinafræði
latneskum nafngiftum í meinafræði og sjúkdómafræði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota algeng fræðileg hugtök sem tengjast efni áfangans
bera saman þróun sjúklegra breytinga í frumum, vefjum, líffærum og líffærakerfum
bera saman löskunaráhrif og smithæfni algengra sýkinga í mannslíkama
gera grein fyrir samspili umhverfis-og erfðaþátta í sjúkdómsþróun
útskýra flokkun, hegðun og frumorsakir æxlisvaxtar
gera grein fyrir áhættuþáttum, einkennum, orsökum, afleiðingum og meðferðarmöguleikum algengra sjúkdóma í þekjukerfi, stoð- og taugakerfi
nota fjölbreytta miðla til þess að viðhalda og þróa þekkingu sína í sjúkdóma-og meinafræði
nota latneskar nafngiftir yfir sjúkdóma og hugtök í meinafræði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
rekja þróun sjúklegra breytinga í frumum, vefjum, líffærum og líffærakerfum og útskýra viðbrögð líkamans við þeim
viðhafa viðeigandi smitgát vegna smitandi sjúkdóma
draga ályktanir um möguleg áhrif umhverfislaskana og erfðagalla á sjúkdómsþróun
miðla þekkingu um meinafræði og sjúkdóma í þekjukerfi, stoðkerfi og taugakerfi á fjölbreyttan og skapandi hátt