Í áfanganum er fjallað um framleiðslu og notkun náttúruefna í lyfjafræði. Farið er í óhefðbundnar lækningar, íslenskar lækningajurtir og muninn á lyfjum, náttúrulyfjum og náttúruvörum. Farið er yfir kosti og galla þess að nota náttúrulyf og náttúruvörur. Farið er yfir droga í evrópsku lyfjaskránni, plöntuhluta, afurðir unnar úr plöntum og dýrum og notagildi droga.
NÆRI1NÆ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
notkun náttúruefna í lyfjafræði
uppruna virkra lyfjaefna úr plöntum, dýrum og örverum
framleiðsluaðferðum náttúruefna, öðrum en ræktun
hefðbundnum og óhefðbundnum lækningum
muninum á lyfjum og náttúrulyfjum
helstu íslensku jurtum sem taldar eru hafa lækningamátt
helstu drogum í evrópsku lyfjaskránni og notagildi þeirra
helstu kvillum sem náttúrulyf og náttúruvörur eru seldar við
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
afgreiða mismunandi náttúrulyf og náttúruvörur
veita upplýsingar um notkun á náttúrulyfjum og náttúruvörum
gera grein fyrir helstu íslensku lækningajurtum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
veita faglega ráðgjöf um náttúrulyf og náttúruvörur
útskýra fyrir viðskiptavinum apóteka hvernig nota eigi helstu náttúrulyf og náttúruvörur
veita ráðgjöf um hvaða efni eru hentug og hver ekki fyrir mismunandi einstaklinga
Símat, verkefni, ritgerð, kynningar nema og hlutapróf