Næringarfræði sértækra hópa og við sérstæðar aðstæður
NÆRI3NA05
1
næringarfræði
Næringarfræði sértækra hópa og við sérstæðar aðstæður
Samþykkt af skóla
3
5
Í áfanganum verður farið dýpra yfir ýmis atriði tengd næringarfræðinni, s.s. orku- og bætiefnin og þau skoðuð út frá sértækum hópum og sérstæðum aðstæðum, t.d. skera sig niður, byggja upp kolvetnisbirgðir og undirbúningur fyrir langa útiveru. Einnig verður farið yfir orkuinnihald matvara og fundið út hvaða matvörur henta best fyrir hina ýmsu sértæku hópa eða sérstæðu aðstæður. Í áfanganum verður unnið með uppskriftir og matardagbækur nemenda ásamt uppskriftum og matardagbókum sértækra hópa. Nemendur vinna verkefni tengdum heilsueflandi framhaldsskóla og koma m.a. með eina uppskrift vikulega sem tengist heilsueflandi framhaldsskóla til að birta á heimasíðu skólans.
fæði/næringu íþrótta- og útivistarfólks fyrir, meðan og eftir keppni/útiveru
fæði/næringu fólks við mismunandi aðstæður, s.s. fólks sem þarf að léttast/þyngjast
fæði/næringu íþróttafólks við sérstækar aðstæður, s.s. byggja upp kolvetnislager, skera sig niður og byggja upp vöðva
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meta hollar uppskriftir sem uppfylla kröfur "Heilsueflandi framhaldsskóli – næringarfræðihluti"
vinna á næringarfræðiforritum eins og www.matarvefurinn.is og nýta sér forritin í daglegu lífi
skipuleggja fæði fólks við mismunandi og sérstækar aðstæður
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í umræðum um viðfangsefnin
taka upplýsta ákvörðun um hvað sé rétt og hvað sé rangt tengt viðfangsefnunum
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.