Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1369818623.48

    Grunnaðgerðir algebru
    STÆR1GA03
    2
    stærðfræði
    Grunnaðgerðir algebru
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Aðalmarkið áfangans er að auka skilning nemandans á undirstöðum reikniaðgerða og hvernig hægt er að nýta þá færni í daglegu lífi. Í áfanganum er lögð megináhersla á nemandi tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð og þjálfist í samvinnu og rökhugsun.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Bókstafareikningi.
    • Jöfnum.
    • Almennum brotum/hlutfallareikningi.
    • Einföldum fjármálareikningi.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Leysa bókstafareikning í einfaldri mynd.
    • Leysa einfaldar jöfnur úr daglegu lífi.
    • Beita einföldum fjármálareikningi sem snýr að daglegu lífi og neyslu.
    • Vinna í hópi og gera grein fyrir niðurstöðum.
    • Beita hlutfallareikningi.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Nýta sér reikniaðferðir til að skilja og leysa verkefni daglegs lífs.
    • Geta beitt stærðfræði við verkefni sem varða samskipti hans við samfélagið.
    • Hugsa rökrétt, frá einu skrefi til annars.
    • Sannreyna niðurstöður.
    Námsmatið verður fyrst og fremst í formi verkefna og vinnuframlags. Vinna nemanda er metin jafn óðum (símat) og fá þeir einkunn fyrir öll verkefni. Vinna nemanda er metin út frá þremur meginþáttum. Í fyrsta lagi áræðanleiki lausna. Í öðru lagi frágangur og uppsetning. Í þriðja lagi ástundun, vinnuframlag í kennslustundum.