Kynning, verkleg þjálfun á ýmsum störfum í nærumhverfi
Samþykkt af skóla
1
5
Í áfanganum fer fram kynning og verkleg þjálfun á ýmsum störfum í nærumhverfinu. Nemandinn fær tækifæri til að að vinna á vinnustað/stöðum og starfa á honum undir leiðsögn
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi vinnustöðum
ábyrgð og skyldum þess að vera starfsmaður á vinnustað
eigin áhugasviðum og styrkleikum sem starfsmaður
mikilvægi þess að sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi
almennum reglum vinnumarkaðsins og vinnuumhverfis
öryggis og aðbúnaði fyrir starfsmenn á vinnustöðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita aðferðum sem leiða til betri vinnubragða í starfi
þekkja eigin styrkleika til mismunandi starfa
nýta reynslu og yfirsýn námsins í starfsvali síðar
vinna sjálfstætt og í hópi
leita að vinnu á almennum markaði
yfirfæra lærða færni á raunverulegar aðstæður
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja hvernig hægt er að öðlast sjálfstæði í vinnubrögðum
skilja hvað þarf til að geta valið sér starf við hæfi
skilja eigin styrkleika og áhugasvið þegar kemur að starfsvali
skilja skyldur og ábyrgð þess að vera starfsmaður og á vinnumarkaði
geta verið hluti af heild á vinnustað
stunda áframhaldandi nám
Námið er metið í samráði við vinnuveitendur eða þann starfsmann sem falin er umsjón með nemandanum. Leitast er við að meta ákveðna þætti s.s ástundun, sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.