Náms- og starfsfræðsla, sækja um starf, vinnumarkaður
Samþykkt af skóla
1
2
Í áfanganum þjálfist nemendur í að leita að námi og starfi, gera náms- og starfsferilskrá og sækja um nám eða starf. Vinnumarkaðurinn er skoðaður, sérstaklega vinnumarkaður nærumhverfisins með starfsval í huga.
NÁSS1ÁM02
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
vinnumarkaði, sérstaklega vinnumarkaði nærumhverfisins
réttindum og skyldum á vinnumarkaði
hvernig á að leita að starfi
hvernig á að gera starfsferilskrá
hvernig á að gera Europass ferilskrá
hvernig á að sækja um starf
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skoða vinnumarkaðinn
þekkja réttindi og skyldur á vinnumarkaði
nota upplýsingatækni og hjálpargögn í leit að námi og starfi
gera starfsferilskrá
búa til Europass ferilskrá
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vera virkur í atvinnuleit
skilja hvernig starfsferilskrá nýtis á vinnumarkaði
nýta sér starfstengdar upplýsingaveitur sem má finna á veraldarvefnum
geta sótt um starf
Námsmat skal vera óhefðbundið s.s. leiðsagnarmat, sjálfs- og jafningjamat.