Líffærakerfin með aðaláherslu á þvagfærakerfi, taugakerfi, innkirtlakerfi, æxlunarkerfi, skynfærin, stoð- og hreyfikerfið. Áhersla lögð á samhæfingu líffærakerfa.
LÍFF2LE05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
byggingu og starfsemi nokkurra líffærakerfa,
samhæfingu og stjórnun líffærakerfa,
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera einfaldar tilraunir í lífeðlisfræði og skrifa skýrslur,
framkvæma einfaldar tilraunir,
leita sér áreiðanlegra heimilda á netinu og nýta þær til að skrifa ritgerð eða flytja fyrirlestur,
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera einfaldar mælingar og tilraunir á líkamsstarfsemi og draga ályktanir af þeim útskýra þekkingu sína í máli og myndum.
leita að áreiðanlegum heimildum á netinu og nýta þær til að leysa verkefni.
nýta sér heimildir til að leysa verkefni, skrifa ritgerð og flytja fyrirlestra.
Ýmis verkefni, einfaldar tilraunir, skýrslur, heimildarverkefni og próf.