Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1371722595.19

    Kynjafræði
    FÉLA3KY05
    6
    félagsfræði
    kynjafræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er staða kynjanna, staðalmyndir og stefna karla og kvenna í samfélaginu skoðuð út frá kenningum félagsvísinda. Jafnréttismál varða alla enda er kynferði eitt af því sem skapar margbreytileika mannlífsins, rétt eins og uppruni, aldur, kynhneigð, stétt og fleiri félagslegir áhrifaþættir. Ætlunin er að skoða hvernig kynhlutverkin skarast á við áðurnefnda þætti. Meðal efnisþátta er klám, mansal, kynhlutverk, sjónvarpsefni og ofbeldi. Eitt af meginmarkmiðum áfangans er að vekja ungt fólk til meðvitundar um réttindi sín hvað varðar jafnréttismál.
    FÉLV1SJ06 og SAGA2MN05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • að jafnréttismál varða allt samfélagið
    • helstu aðferðum og viðfangsefnum kynjafræðinnar
    • stöðu kynjanna í samfélaginu
    • mismunandi mótun kynjanna út frá menningu, umhverfi og tíma
    • réttindum er varða jafnréttismál
    • staðalmyndum um kvenleika og karlmennsku
    • kynjuðum neysluvenjum
    • klámi og áhrifum þess á kynheilbrigði
    • kynbundnu ofbeldi og mörgum birtingarmyndum þess, svo sem mansali og kynferðislegu ofbeldi
    • áherslu hinseginfræða (e. Queer theory) á margbreytileika í stað ríkjandi tvíhyggju
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina stöðu og staðalmyndir kynjanna í fjölmiðlaefni, námsefni og almennri umræðu
    • greina áhrif kynjakerfisins á fjölskylduna og heimilið, skólagöngu og vinnumarkaðinn
    • greina goðsagnir varðandi kynjamun og kynímyndir í samfélaginu
    • afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina áhrif kynferðis á líf hans og annarra
    • geta tekið þátt í rökræðum um stöðu kynjanna
    • taka virkan þátt í samfélaginu, fjölskyldulífi og atvinnulífi með jafnrétti að leiðarljósi
    • geta metið eigið vinnuframlag og annarra
    • geta sett fram þekkingu sína í ræðu og riti
    Símatsáfangi