Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1378396411.46

    Stærðfræði: Markgildi og afleiður
    STÆR3MG05
    14
    stærðfræði
    Markgildi og afleiður
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Formleg skilgreining falla, for- og myndmengi, samsett föll, ræð föll, margliðudeiling, stofnbrotsliðun, andhverfur falla, lograföll, andhverf hornaföll, markgildi, afleiður, deildun, deildahlutfall, fólgin deildun, keðjureglan, milligildisreglan, meðalgildisreglan, samfelld föll og hagnýting örsmæðarreiknings.
    STÆR2RÖ05 (STÆ2B05)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • óendanleika talnakerfisins
    • formlegri skilgreiningu falla
    • markgildi og samfelld föll
    • deildun helstu falla, einfaldra og samsettra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • að túlka raunveruleg viðfangsefni og setja upp sem leysanlegt dæmi tengt örsmæðareikningi
    • að finna útgildispunkta falla á lokuðum bilum
    • nota keðjuregluna við deildun samsettra falla
    • nota klemmureglu og milligildisreglu
    • deilda flókin föll, s.s. vísis- og lograföll
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
    • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
    • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta. Unnið verður til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
    • takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum og jákvæðum huga
    Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.