Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1388465393.03

    Fjallamennska, undirstöðuatriði í rötun, kortalestri, klifri, sigi og línuvinnu
    FJAM2UF05
    1
    Fjallamennska
    undirstöðuatriði í fjallamennsku
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að dýpka skilning á almennri Fjallamennsku. Farið er í undirstöðuatriði í undirbúningi ferðar tengd næringu, klæðnaði og útbúnaði á ferðalögum. Þeir möguleikar sem umhverfið bíður upp á þegar allt er á kafi í snjó eru skoðaðir. Farið verður yfir ýmis atriði er varða klifur, sig og línuvinnu. Einnig verður farið í hvernig maður metur snjóflóðahættu, unnið verður með snjóflóðaíla, gps og áttavita.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • verklegri og faglegri færni til þess að geta undirbúið sig og aðra til að fara í styttri og lengri gönguferðir yfir fjalllendi
    • að stunda fjallamennsku við mismunandi aðstæður s.s. veður, landslag, snjóalög, með ferðalögum um landið allan ársins hring
    • að nemendur þroski hæfileika sína til þess að vinna sjálfstætt og í samvinnu með öðrum
    • að auka skilning nemenda á því hvernig fjallamennska býður upp á nýja námsreynslu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • ferðast í hóp
    • vita hvaða grunnatriði þurfa að vera klár við skipulag ferða
    • þekkja hættur sem fylgja því að ferðast í óbyggðum
    • útbúa sig til lengri og styttri ferða s.s. nesti,fatnaður og búnaður
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • ferðast með hóp og fara eftir reglum hópsins
    • fara eftir ferðaáætlunum
    • tryggja öryggi og meta hættur við að ferðast
    
Áfanginn er bóklegur og verklegur og notast við leiðsagnarmat með símati alla önnina. Nemendur verða að standast mætingakröfur áfangans og skila 3 ferðum á eigin vegum ásamt dagbók.