Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1393449192.0

    Grunnatriði í prjóni og hekli
    PRJH1UF05
    2
    Prjón og hekl
    Uppfitjun og frágangur
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandi læri grunnatriði prjóns og hekls. Kenndar verða aðferðir við frágang bæði prjónaðra og heklaðra verkefna. Áhersla er einnig lögð á að nemandinn öðlist öryggi og sjálfstæði í vinnubrögðum, læri að lesa uppskriftir og fara eftir þeim.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnatriðum í hekli og prjóni í máli og myndum
    • lita og framleiðslunúmerum garns
    • samhengi milli tegundar garns og stærðar prjóna og heklunála sem nota skal meðferð og frágangi full gerðra verkefna
    • hvar hægt er að finna uppskriftir og kennslumyndbönd á veraldarvefnum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa og skilja uppskriftir
    • nýta sér kennslumyndbönd á veraldarvefnum
    • hekla loftlykkju, keðjulykkju,fastapinna og stuðla
    • fitja upp á prjónuðu verkefni
    • prjóna slétta og brugðna lykkju, fella af og lykkja saman.
    • prjóna mynsturprjón og taka upp lykkjur
    • ganga frá endum í prjónuðum og hekluðum verkum
    • þvo og pressa verkefni eins og við á hverju sinni
    • vanda vinnubrögð við alla þætti vinnuferlisins
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta nýtt sér upplýsingatækni við vinnu í prjóni og hekli
    • lesa úr og nota vinnuleiðbeiningar í máli og myndum
    • vanda alla þætti ferilsins
    Leiðsagnarmat