Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1394013780.56

    Kórsöngur
    KÓRS1RS05
    2
    Kórsöngur
    Raddbeiting og samsöngur
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í þessum upphafsáfanga í kórsöng eru undirstöðuatriði kórsöngs kynnt. Fjallað er um grundvallaratriði raddbeitingar, mikilvægi tónblæs í samsöng, undirstöðuatriði inntónunar og grunnatriði nótnalesturs. Kórfélagar kynnast fjölbreyttri tónlist frá ýmsum löndum og úr mismunandi tónlistarstefnum. Kórfélagar taka þátt í fjölbreyttum verkefnum, æfa tvisvar til þrisvar í viku í tvo tíma í senn. Æfingabúðir eru haldnar eina helgi á hverri önn. Kórinn kemur fram við ýmis tækifæri, heldur tónleika, syngur við brautskráningarathafnir í skólanum og heldur reglulega í söngferðalög, bæði innlands og utan. Allir kórfélagar taka þátt í undirbúningi ferða, s.s. með fjáröflun o.fl.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • undirstöðuatriðum nótnalestrar, s.s. tónhæð, nótnaheitum og einfaldri uppsetningu kórnótna
    • algengustu gerða tónstyrksmerkinga og breytinga á tónstyrk
    • tónmyndun raddarinnar og undirstöðuatriðum raddbeitingar
    • helstu einföldu rytmasamsetningum og taktlengdum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • koma fram með kór, sem felst í einföldum atriðum er varða stöðu og framkomu
    • fylgja einföldum laglínum af nótum, bæði hvað varðar tónhæð og rytma
    • syngja sig saman í hljóm með nokkuð öruggri inntónun
    • greina sína rödd út frá einföldum, ómþýðum hljómi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • njóta fegurðar samsöngs
    • meta gildi tónlistar sem listgreinar
    • hefja að þroska með sér smekk fyrir kórtónlist