Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1394622124.17

    Mannfræði
    FÉLA3MA05
    12
    félagsfræði
    mannfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Viðfangsefni mannfræðinnar er manneskjan sem dýrategund. Í áfanganum er farið yfir helstu nálganir mannfræðinnar að mannskepnunni. Meginhluti efnisins beinist að félagslegri mannfræði og nemendur kynnast rannsóknaraðferðum og helstu umfjöllunarefnum mannfræðinga. Lögð er áhersla á að nemendur kynnist mismunandi menningarheimum og fái þjálfun í að beita afstæðishyggju sem hluta af aðferðarfræði fagsins. Meðal þess sem tekið verður fyrir er fjölbreytileiki í fjölskylduformum, hjúskap, sifjakerfum, ættrakningu, kynhlutverkum, lagskiptingu, stríðsrekstri, friðarferlum, hagkerfum og trúarhugmyndum. Heildræn sýn mannfræðinnar á hvernig mismunandi stofnanir samfélagsins tengjast og hafa áhrif hver á aðra er höfð í forgrunni sem og hvaða hlutverki mannfræðin hefur í hnattrænu samfélagi nútímans og framtíðar. Nemendur fá einnig innsýn í nálgun líffræðilegrar mannfræði, til dæmis prímatafræði, fornmannfræði, erfðamannfræði og réttarmannfræði.
    A.m.k. 5 einingar í félagsfræði á 2.þrepi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • fjórskiptingu mannfræðinnar
    • sögu mannfræðinnar sem fræðigreinar
    • rannsóknum erlendra og íslenskra mannfræðinga hérlendis og erlendis
    • sértækum hugtökum mannfræðinnar
    • sérstöðu mannfræðinnar og skyldleika hennar við aðrar greinar félagsvísinda
    • nokkrum fjarlægum og nálægum menningarheimum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leggja gagnrýnið mat á þróunarhugtakið bæði hvað varðar líffræðilega og menningarlega þróun
    • beita aðferðarfræði mannfræðinga
    • skoða fjarlæg og nálæg samfélög í gegnum kenningargleraugu mannfræðinnar
    • afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
    • nýta fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli
    • miðla skýrt og skilmerkilega fræðilegu efni í ræðu og riti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna úr rannsóknargögnum og leggja á þau mat
    • sýna frumkvæði að raunhæfum lausnum
    • meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
    • beita afstæðishyggju í umræðum um menningarleg málefni og þekki til takmarkana hennar
    Leiðsagnarmat