Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1400178381.09

    Tröllaskagi, frumkvöðlafræði
    FRUM1TR05
    2
    frumkvöðlafræði
    Tröllaskagi
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Markmið áfangans er að örva sköpunarkraft og auka djörfung nemenda og dug til að kasta sér út í ný verkefni þar sem útkoma er ekki fyrirfram gefin. Kostur er að verkefnin séu fjölbreytt og nemendur velji eitthvað sem þeir hafa áhuga á og gætu hugsað sér að vinna við eða að minnsta kosti nýta sér. Miðað er við að afþreyingin sé á sviði menningar og lista, tengist náttúru, íþróttum eða annarri hreyfingu en raunar takmarkast viðfangsefnin aðeins af hugmyndaflugi nemenda. Stundum tengist afþreying félags- eða tómstundastarfi en alls ekki alltaf. Farið verður í grunnatriði sem hafa verður í huga við skipulagningu verkefna, svo sem verkáæltun, kostnaðaráætlun, skilgreiningu markhóps og markaðssetningu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hugarflæði við hugmyndavinnu
    • helstu þáttum afþreyingar í nærsamfélagi
    • mikilvægi góðra skilgreininga á hugmynd og verkefni
    • mikilvægi áæltunar varðandi markhóp, verkþætti og kostnað
    • gildi þess að hugsa í lausnum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • virkja hugmyndaflugið
    • meta hvaða upplýsinga og gagna er þörf við sköpun nýs verkefnis
    • starfa í hóp þar sem virðing og jákvæð samskipti einkenna ákvarðanatöku
    • deila réttlátlega ábyrgð á einstökum verkþáttum
    • kynna eigin hugmyndir og verkefni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hugsa lausnamiðað
    • gera verkáætlun sem hentar því verkefni sem hugmynd er að
    • skipuleggja starf í hópi þannig að kraftar hvers og eins nýtist og allir séu sáttir við sinn hlut
    • ráðast í verkefni þar sem árangur er óviss
    • kynna eigin vinnu þannig að höfði til markhóps
    Símat fer fram alla önnina og gilda verkefni sem skilað er á fyrri hluta annar helming á móti framlagi á kynningu í lok annar þar sem afrakstur vinnunnar í síðari hluta áfangans er sýndur.