Í áfanganum er fjallað um skráningu og meðferð persónuupplýsinga í sjúkraskrá, varðveislu þeirra gagna, þagnarskyldu um upplýsingar í sjúkraskrám og rafræna sjúkraskrá. Farið í lög um sjúkraskrá, réttindi sjúklinga, hlutverk og skyldur heilbrigðisstarfsfólks í tengslum við sjúkraskrá. Upplýsingaleit á netinu m.a. skoðaður gagnagrunnar fyrir heilbrigðisvísindi, leitað verður í þessum gagnagrunnum að upplýsingum og nauðsyn þeirra metin. Fjallað er um uppsetningu ritgerða, áreiðaleika heimilda og uppsetning ritgerða samkvæmt APA tilvísunarkerfinu.
UTN103 eða sambærilegur áfangi í eldri námskrá
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvað sjúkraskrár eru, varðveislu þeirra og á hvaða formi þær eru varðveittar
hvaða lög gilda um réttindi sjúklinga, sjúkraskrár og heilbrigðisstarfsfólk
upplýsingaleit í heilbrigðisvísindum og mat á áreiðanleika þeirra
gerð heimildaritgerða og heimildanotkun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skrá samkvæmt skráningarkerfum sem notuð eru í heilbrigðiskerfinu og geta leitað í rafrænni sjúkraskrá að upplýsingum
leita á vefnum að upplýsingum um heilsu, heilbrigði og hjúkrun og meta trúverðugleika þeirra
kynna lög um sjúklinga, sjúkraskrá og heilbrigðisstarfsfólk á greinagóðan hátt
skrifa heimildaritgerð skv. APA heimildaskráningakerfinu.
virða þagnarskyldu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
rökstyðja lög er varða sjúklinga, heilbrigðisstarfsfólk og umhverfi þeirra
geta nýtt sér heilbrigðisgagnagrunna á netinu
meta áreiðanleika heimilda á netinu
skrifa heimildaritgerð samkvæmt viðurkenndum aðferðum
leita í sjúkraskrám að upplýsingum, sem þar eru.
a
Verklegar æfingar, verkefni eða skv. skólanámskrá viðkomandi skóla.