Farið verður í leikjaforritun í Alice, hvernig hægt er að nýta forritið til að tjá sig og segja sögur. Til kennslu verða notuð myndbönd og sýnishorn af vef og textaleiðbeiningar. Lögð verður áhersla á frumleika og sjálfstæð vinnubrögð.
Einnig verða kenndar grunnlausnir við forritun í gegnum Codecademy
æskilegt að nemendur hafi lokið amk 5 einingum í stærðfræði á 2. þrepi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugarflæði við hugmyndavinnu
mikilvægi góðra skilgreininga á hugmynd og verkefni
grunnforritun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
virkja hugmyndaflugið
starfa í hóp þar sem virðing og jákvæð samskipti einkenna ákvarðanatöku
vinna sjálfstætt og nýta hugmyndaflug í verkefnavinnu
kynna eigin hugmyndir og verkefni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
blanda saman mismunandi aðferðum til verkefnavinnu
koma eigin frumleika til skila með þeim tólum sem notuð verða í áfanganum
hugsa lausnamiðað
skipuleggja starf í hópi þannig að kraftar hvers og eins nýtist og allir séu sáttir við sinn hlut
kynna eigin vinnu
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.