Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1401976777.73

    Hjúkrun verkleg
    HJVG1VG05
    1
    Hjúkrun, grunnur, verkleg
    Verkleg, hjúkrun
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er fjallað um nánasta umhverfi sjúklinga á heilbrigðisstofnunum og á heimili hans svo sem sjúkrarúmið, sjúkrastofuna og ýmis hjálpartæki. Fjallað er um persónulegar þarfir sjúklinga og leiðir til að mæta þeim. Fjallað er um fylgikvilla rúmlegu, mælingar og mat á lífsmörkum og skráningu þeirra, þar með talið öndunaraðstoð og súrefnisgjöf. Fjallað er um hreinlæti, smitgát, sýnatökur og frágang sýna. Áfanginn er að mestu verklegur.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi þess að virða persónuleg mörk og persónulegt rými skjólstæðings
    • nánasta umhverfi skjólstæðings miðað við aðstæður hans hverju sinni
    • mismunandi legu skjólstæðings í rúmi
    • mikilvægi líkamlegs hreinlætis og tannhirðu
    • mikilvægi næringarinntektar og úrgangslosunar
    • mikilvægi hreinlætis, smitgátar og smitgátarvinnubragða
    • umgengni við æðaleggi, súrefnisleggi, þvagleggi og þvagpoka
    • framkvæmd sýnatöku
    • mikilvægi lífsmarkamælinga
    • persónulegum hjálpartækjum skjólstæðinga og umhirðu þeirra
    • meðhöndlun hjúkrunargagna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita mismunandi aðferðum til þess að hagræða skjólstæðingi
    • umgangast nánasta umhverfi skjólstæðings af virðingu
    • undirbúa nánasta umhverfi skjólstæðings fyrir komu
    • búa um skjólstæðing í mismunandi aðstæðum
    • aðstoða skjólstæðing við að nota hjálpartæki
    • nota viðeigandi aðferðir við sýnatökur og frágang þeirra
    • undirbúa, framkvæma og skrá lífsmarkamælingar
    • aðstoða skjólstæðing við tannhirðu og persónulegt hreinlæti
    • undirbúa og aðstoða skjólstæðing við að matast og skrá næringarinntekt
    • skrá útskilnað úrgangsefna
    • farga hjúkrunargögnum á viðeigandi hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • umgangast sjúkrastofuna og umhverfi sjúklings á viðeigandi hátt
    • annast daglegan umbúnað sjúkrarúms með og án skjólstæðings við mismunandi aðstæður
    • undirbúa og veita skjólstæðingi persónulega aðhlynningu
    • fylgast með, meta og skrá næringarinntekt og útskilnað
    • a
    • fylgjast með, meta og skrá lífsmörk
    • sýna lífsgildum skjólstæðings virðingu
    • sýna umhyggju í samskiptum skjólstæðinga, aðstandenda og samstarfsfólks
    • meta athafnir daglegs lífs og bregðast við þeim
    • a
    skv. skólanámskrá viðkomandi skóla