´Í áfanganum læra nemendur að nota ritvinnsluhugbúnað til að skrifa ritgerðir og töflureikni og glæruforrit til að setja fram upplýsingar á margvíslegu formi við vinnslu verkefna í námi sínu. Fjallað um tölvubúnað og hvernig best má hagnýta hann í námi. Fjallað verður um almenn atriði upplýsingalæsis, m.a. er farið yfir gögn um upplýsingaöflun, útgáfuform upplýsinga, bókasöfn, handbækur og tölvusamskipti.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ritvinnslu í tölvum.
töflureikni í tölvum.
uppsetningu efnis í ritvinnslu.
tölvukerfi skólans.
glærugerðarforritum.
mikilvægi þess að vanda sig í samskiptum í tölvupósti og á neti.
notkun heimilda.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leita í upplýsingasöfnum og ræða tölvutengd efni.
vinna í tölvum á skipulegan hátt.
afla gagna.
flokka gögn.
skilja mikilvægi gagnrýninnar heimildanotkunar þegar efni af netinu er notað.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Lokaverkefni og styttri verkefni yfir önnina. Metið hvernig nemandinn beitir margmiðlun við framsetningu efnis og hvernig innihald þess er sett fram, hvort nemandinn sýnir skilning á viðfangsefninu, hann setur fram viðbótarþekkingu eða sýnir fram á ný tengsl þekkingar og hvort hann sýnir frumkvæði. Einnig er tekið tillit til upplýsingagildis og vals á áreiðanlegum og traustum heimildum.