Byltingar hafa fylgt mannkyninu um langa hríð og í samtímanum eru byltingar af einhverju tagi nánast daglegt fréttaefni. Í áfanganum eru helstu byltingar sögunnar skoðaðar og ástæður og afleiðingar þeirra greindar. Þær eru bornar saman og áhrif þeirra á nútímann eru metin. Einnig eru byltingar sem eru að gerast í kringum okkur í dag skoðaðar og greindar á sama hátt. Námsefnið er fjölbreytt. Fræðilegt lesefni, kvikmyndir af ýmsum toga, efni úr fjölmiðlum o.fl. Verkefnavinna nemenda er af ýmsum toga, meðal annars umræður þar sem nemendur ræða námsefnið og greina. Einnig eru fjölbreytt verkefni unnin í kennslustundum þar sem kafað verður dýpra ofan í ýmsa þætti lesefnisins. Í lok annar nýta nemendur þekkinguna sem þeir hafa aflað sér á önninni til þess að leggja mat á atburði í nútímanum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvað felst í hugtakinu bylting og öðrum tengdum hugtökum
helstu byltingum í Íslands- og mannkynssögunni
þeim ástæðum sem liggja að baki þeim
afleiðingum þeirra og áhrifum á nútímann
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa fræðilega texta jafnt á íslensku sem erlendum tungumálum
afla sér heimilda á viðurkenndan hátt
leggja mat á og túlka fjölbreyttar upplýsingar
beita gagnrýninni hugsun
nýta viðurkenndar heimildir til að miðla skoðun sinni á fjölbreyttan hátt
taka þátt í upplýstum umræðum um námsefnið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta tjáð skoðanir sínar á rökstuddan hátt í ræðu og riti
geta beitt gagnrýninni hugsun á markvissan hátt
leggja mat á það hvernig byltingar hafa mótað nútímann
geta áttað sig á áhrifum byltinganna
læra af fortíðinni
geta sett fram efni með verklagi sagnfræðinnar á viðurkenndan hátt
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.