Áfanginn bæði bóklegur og verklegur. Kennt verður þrisvar sinnum í viku; tvisvar 50 mín og einu sinni 100 mín.
Bóklegi hlutinn:
Áfanginn er undirbúningur fyrir þá sem hafa áhuga á almennri heilsueflingu; þjálfun og þáttum sem hafa áhrif á hana. Áfanginn er góður grunnur fyrir íþróttakennaranám og einkaþjálfaranám.
Verklegi hlutinn:
Verklegir tímar verða 3-4 sinnum yfir önnina. Nemendur þurfa að klæðast íþróttafötum og taka virkan þátt í tímanum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Þolþjálfun
Liðleika
Styrktarþjálfun
Kraftþjálfun
Hraðaþjálfun
Æfingarkerfum og áætlunum
Mælingum
Helstu vöðvum og virkni þeirra
Helstu vítamínum og fæðubótarefnum
Skaðsemi stera á líkamlega og andlega heilsu
Offitu og megrunarkúrum
Átröskunum; anorexiu og búlemíu
Næringarfræði; prótein, fita og kolvetni
Matvælalæsi.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að reikna út æfingarpúls fyrir brennslu og/eða þolþjálfun og vinna eftir honum
að reikna út líkamþyngdarstuðul (BMI)
lesa greinar og rannsóknir á gagnrýnin hátt
að nálgast upplýsingar á veraldavefnum til þess að nýta sér í þjálfun.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hanna æfingaprógram og framfylgja því með breyttan lífsstíl í huga
taka sjálfstæðar ákvarðanir og vera gagnrýnin á upplýsingar er varða mataræði og hreyfingu
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.