Áfanginn er allt í senn bóklegur, verklegur og vettvangsmiðaður. Kennt verður tvisvar í viku; einu sinni 50 mín. og einu sinni í 100 mín.
Verklegi hlutinn:
Í verklega hlutanum verður farið í fjölbreyttar aðferðir í kennslu og þjálfun barna og unglinga í íþróttum. Nemendur eru bæði þátttakendur og leiðbeina hvort öðru.
Farið verður á vettvang, þar sem nemendur horfa á íþróttakennslu barna og taka þátt í kennslu og undirbúningi íþróttakennslu á yngsta stigi.
Bóklegi hlutinn:
Í bóklega hlutanum er farið í grundvallaratriði sem einkenna góðan íþróttaleiðbeinanda. Nemendur læra að byggja upp íþróttatíma og setja upp tímaseðla.
Farið verður í þroskaferli barna og unglinga og mikilvægi holls mataræðis.
Nemendur kynnast einnig starfsemi íþróttafélaga og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands.
Til þess að vinna sér inn A-stigs réttindi þarf nemandi að:
- hafa skilað öllum verkefnum
- vera með yfir 90% raunmætingu
- hafa tekið virkan þátt í öllum æfingakennslunum
Þeir sem ekki ná að uppfylla þessi skilyrði að fullu geta náð áfanganum án þess að öðlast réttindin.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi þess að vera góð fyrirmynd barna og unglinga í kennslu
mikilvægi góðs skipulags í kennslu og þjálfun barna og unglinga
helstu grundvallaratriðum í þjálffræði og næringarfræði
skipulagi og stefnuyfirlýsingu ÍSÍ um íþróttir barna og unglinga
þroskaferli barna og unglinga (líkamlegur þroski, hreyfiþroski, sálrænn þroski og félagsþroski) allt frá forskólaaldri upp í 18 ára aldur.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að búa til þjálfunaráætlun
að búa til og setja upp skipulagðan tímaseðil
að nýta sér fjölbreyttar aðferðir í kennslu og þjálfun íþrótta.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
að taka þátt í og/eða sjá um kennslu og þjálfun í íþróttum barna og unglinga sem leiðbeinandi.
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.