Helstu efnisatriði eru: talnareikningur, forgangsröð reikniaðgerða, algebra, breytistærðir, forskriftir,
hnitarúmfræði, ferlar, gildistöflur, liðun, þáttun, jöfnur, jöfnuhneppi, línur, skurðpunktar, fleygbogar,
annars stigs jöfnur, margliður, veldareglur, ferningsrót, staðalform, núllstöðvar og geogebra.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
forgangsröð reikniaðgerða
frumtölum og frumþáttun
einföldum reglum um veldi og rætur
staðalformi
notkun tákna fyrir breytistærðir
einföldun, liðun og þáttun algebrustæða
jöfnum af fyrsta og öðru stigi og einföldum jöfnuhneppum
hnitakerfinu
eiginleikum beinnar línu og fleygboga
fallhugtakinu
forskrift, gildistöflu og ferli falla
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota reiknireglur til þess að reikna gildi ýmissa stæða
stytta brot og einfalda stæður með veldum og rótum
setja fram algebrureglur sem almennar jöfnur
leysa fyrsta og annars stigs jöfnur sem og jöfnuhneppi
Nota reglur sem eru settar fram sem almennar algebrustæður eða jöfnur
teikna ferla ýmissa falla eftir gildistöflum
teikna og lýsa ýmsum eiginleikum lína og fleygboga
lýsa sambandi tveggja breyta á myndrænan hátt
lýsa raunverulegum fyrirbrigðum með notkun falla
nýta forritið Geogebra og önnur tæki til að hjálpa til við dæmalausnir og skýringu á stærðfræðilegum fyrirbærum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum og jákvæðum huga.
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.