Áfanginn er bóklegur og í fyrri hluta hans er lögð áhersla á undirstöðuatriði í fóðrun, heilbrigði og umhirðu hesta. Nemendur munu öðlast góðan grunnskilning á atferli íslenska hestsins og þróunarsögu hans hérlendis, ásamt því að geta greint frá ýmsum fagfélögum sem starfa í þágu hestsins.
Í seinni hluta áfangans verður fjallað um líkamsbeitingu hestsins, gangtegundir hans og grunnatriði í reiðmennsku knapans. Nemendur læra um öryggismál í hestaíþróttinni og sitja námskeið í skyndihjálp.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnþörfum íslenska hestsins í fóðrun og umhirðu
eðli og atferli hestsins og hvernig knapinn á að umgangast hann
gangtegundir íslenska hestsins og notkun þeirra
þróunarsögu íslenska hestsins og hvernig íslensk náttúra hefur mótað hann
líkama hestsins og hvernig hann beitir sér með og án knapa
fræðunum sem liggja að baki einföldum fimiæfingum við hendi, í hringteyming og reið
helstu atriðum skyndihjálpar og öryggismálum tengdum faginu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tjá sig í umræðum um hesta á faglegum grundvelli
vinna sjálfstætt og í hópum
flokka hesta í rétt holdastig og reikna fóðurþarfir þeirra
greina líkamlega hegðun og skapgerð mismunandi hesta
sjá mun á gangtegundum og líkamsbeitingu hesta með og án knapa
bregðast rétt við slysum tengdum hestum og mönnum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
miðla þekkingu sinni og reynslu til annarra
hafa vald á helstu ásetum, taumhaldi og stjórnun á baki
að sinna öryggismálum í sambandi við hesthús, búnað, umgengni við hesta og í reið
beita helstu atriðum skyndihjálpar
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.