Áfanginn miðar að því að nemendur öðlist hæfni í að nýta fyrri reynslu, þekkingu og skilning við úrvinnslu nýrra viðfangsefna auk þess að meta eigið vinnuframlag. Jafnframt er markmið áfangans að efla ábyrgðartilfinningu nemenda gagnvart sjálfum sér, námi sínu og umhverfi. Áhersla er lögð á fjölbreyttar nálganir og sérstaklega er unnið með sköpun. Nemendur eru hvattir til að setja sér eigin markmið m.a. með því að taka þátt í að velja skiladaga á verkefnum. Í áfanganum þjálfast þeir í sjálfstæðum vinnubrögðum ásamt því að fá tækifæri til að vinna með öðrum. Lesin er ein Íslendingasaga. Þá kynnast nemendur bókmenntum og bókmenntasögu tímabilsins frá 1550-1920; þ.e. frá lærdómsöld til nýrómantíkur.
Íslendingasögur: Nemendur lesa eina þekkta Íslendingasögu og kynnast þeim hugmyndaheimi sem sögurnar grundvallast á; þ.e. hvaða gildi eru þar við lýði og hvaða orsakir eru að baki hinum frásagnarverðu atburðum sem segir frá í sögunni.
Bókmenntasaga: Lesin eru ljóð og brot úr bókmenntaverkum frá tímabilinu 1550 til 1920. Nemendur kynnast bókmenntum tímabilsins og helstu höfundum þess. Einnig kynnast nemendur því hvaða hugmyndaheimur er að baki hverju tímabili fyrir sig; þ.e. hvaða kenningar/hugmyndafræði er að baki þeim bókmenntum sem til urðu á þessu tímabili (lærdómsöld, upplýsing, rómantík, raunsæi og nýrómantík).
Ritun: Lögð er áhersla á fjölbreytta verkefnavinnu þar sem nemendur vinna jafnt hefðbundin ritunarverkefni sem og skapandi verkefni. Einnig efla nemendur hæfni sína við að byggja upp á heimildaritgerð á sjálfstæðan og faglegan hátt.
Eddukvæði og Íslendingasögur - ÍSLE2ED05 (ÍSL2B05)
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ritgerðarsmíð og heimildarvinnu
helstu einkennum íslensks máls sem nýtast í ræðu og riti, sem og til náms í erlendum tungum
orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
mismunandi tegundum bókmennta og nytjatexta, stefnum í íslenskum bókmenntum að fornu og nýju og öllum helstu bókmenntahugtökum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna heimildaritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og greinagóðan hátt á blæbrigðaríku máli
vinna að frágangi heimildaritgerða og hvers kyns texta og að nýta sér uppbyggilega gagnrýni annarra til betrumbóta
nýta málfræðihugtök af öryggi í umræðum um málið og þróun þess, menningu og sögu
skilja og nota viðeigandi stílbrögð, orðatiltæki og menningarlegar vísanir í tal- og ritmáli
draga saman og nýta á viðurkenndan og gagnrýninn hátt upplýsingar úr hvers kyns heimildum, hvort sem er í ræðu eða riti, og meta áreiðanleika þeirra
flytja af öryggi og sannfæringarkrafti vel upp byggða ræðu eða ítarlega kynningu á flóknu efni
lesa allar gerðir ritaðs máls að fornu og nýju sér til gagns og gamans, skilja lykilhugtök og greina mismunandi sjónarmið.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrifa skýran, vel uppbyggðan og grípandi texta og geta valið ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum
leggja mat á og efla eigin málfærni og annarra, til dæmis með því að nýta málfræðiupplýsingar og þekkingu sína á íslenska málkerfinu
beita málinu á viðeigandi og árangursríkan hátt við mismunandi aðstæður í ræðu og riti
tjá rökstudda afstöðu við ýmsar kringumstæður, útskýra sjónarmið og taka virkan þátt í málefnalegum umræðum til að komast að vel ígrundaðri niðurstöðu
draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta, átta sig á samfélagslegum skírskotunum og ná duldum boðskap og hugmyndum
sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum, umfjöllun og verkun.
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.