form- og litafræði, grunnáfangi í myndlist, teikning
Samþykkt af skóla
1
3
Þessi áfangi er grunnáfangi í myndlist þar sem kennd verða grunnatriði teikningar, form- og litafræði. Lögð er áhersla á að þjálfa formskilning nemenda með því að teikna einföld form svo sem kúlu, kassa, keilu og sívalning. Nemendur kynnast og læra að beita lögmálum myndbyggingar, hvernig ólík form, punktar, línur og áferð hafa áhrif á jafnvægi myndflatarins og merkingu. Í litafræðinni kynnast nemendur grundvallaratriðum í meðferð lita, þar sem þeir kanna samspil lita, virkni þeirra og áhrif.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnþáttum í myndlist
notkun teikniáhalda og virkni þeirra
litasvið blýantsins og aðferðum til skygginga
framkalla þrívídd með skyggingu
grunnþáttum formfræði og teikningar
blöndun grunnlita í litatóna og hugtök þar að lútandi
myndbyggingu
eins og tveggja punkta fjarvídd
formum og uppbyggingu þeirra.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera skissur og teikningar
framkalla þrívídd með skyggingu
blanda liti í mismunandi tónum
vinna að uppbyggingu myndflatar og nýta sér markvisst hugtök á borð við: - jafnvægi, spennu, þunga, hrynjandi, samhverfu, mynstur og andstæður
vinna myndverk í þrívídd og fjarvídd
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta reglur og form í eigin listsköpun
vinna á persónulegan hátt með eigin hugmyndir og útfært í myndverk með tilliti til lita-, formfræði og myndbyggingar.
byggja upp myndverk
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.