Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1409741644.8

    Mannslíkaminn
    LÍFF2LM05
    13
    líffræði
    Líffræði mannsins, efnaskipti og líffærakerfi, frumur
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum grunnáfanga líffræðinnar verður farið í helstu þætti í líkamsstarfsemi mannsins auk þess sem lífefnafræði er kynnt. Helstu áhersluþættir eru: grunnbyggingareiningar lífs, starfsemi fruma, skynfæri og líffærakerfi mannsins. Farið verður í taugakerfi, blóðrás, meltingu, stoðkerfi, húð, vöðva, ónæmiskerfi og æxlun.
    NÁTT2GR05 (NÁT2A05)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnatriðum í lífefnafræði
    • starfsemi taugakerfis og hlutverkum boðefna
    • hlutverki húðarinnar
    • blóðrásarkerfinu
    • meltingarkerfinu
    • stoðkerfum líkamans og eðli hreyfingar
    • helstu skynfærum mannsins
    • ónæmiskerfinu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa og vinna með líffræðileg hugtök á íslensku og ensku
    • skoða vefi og líffæri
    • meta samspil mismunandi líffærakerfa
    • meta gagn og skaðsemi ýmissa efna fyrir líkamann
    • velja úr safni heimilda og nýta þær til að koma eigin texta til skila á skilmerkilegan máta
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • auka skilning sinn á líkamanum og þáttum tengdum honum
    • meta lífeðlisfræðilegar upplýsingar á gagnrýninn hátt
    • skiptast á skoðunum við aðra um lausnir og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega í mæltu máli og myndrænt
    • dýpka frekar skilning sinn á mannslíkamanum til gagns og ánægju
    Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.