Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla verður á fjármálalæsi í víðu samhengi. Farið verður yfir helstu persónulegu útgjöld í lífi ungs fólks, heimilisbókhald og gildi þess að halda utan um eigin fjármál. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Mikilvægi réttinda og skyldna neytenda
Mikilvægi þess að hafa yfirsýn yfir eigin útgjöld og tekjur
Hvernig nýta má greiðslukort
Að stundum þarf að forgangsraða í fjármálum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Lesa á launaseðil eða tryggingaryfirlit
Byggja upp sparnað á einfaldan og hagkvæman hátt
Standa við þær skuldbindingar sem viðkomandi hefur gert
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Halda utan um eigin fjármál að öllu eða einhverju leiti
Átta sig á tengingunni milli réttinda og skyldna
Námsmatið er einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.