Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla verður á tímahugtök og unnið verður með þau á fjölbreyttan hátt, s.s. í gegnum verkefnavinnu, veraldarvefinn og verklegar æfingar, t.d. að fara í strætó. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Algengum tímahugtökum
Vikudögum
Mánuðum
Dagsetningum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Lesa í og/eða nýta sér dagatal
Lesa á klukku
Breyta dagsetningu úr rituðu máli yfir í tölustafi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Nýta sér tímahugtök í daglegu lífi
Átta sig á árstíðum og þeim mánuðum sem tilheyra hverri árstíð
Nýta sér viðeigandi stuðningstæki þegar það á við, s.s. dagatal
Vera stundvís
Námsmatið er einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.