Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Sérstök áhersla verður á undirstöðuatriðum og verklagi tengdu bakstri. Notast verður við fjölbreyttar uppskriftir og áhersla verður á persónulegt hreinlæti þeirra sem starfa við bakstur.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Að bakstur er eldunaraðferð þar sem hráefnið er eldað í þurrum hita, oftast í ofni
Helstu áhöldum og tækjum í eldhúsi
Að hægt er að leita leiða á fjölbreyttan hátt
Mikilvægi hreinlætis við baksturs
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Fara eftir uppskriftum
Taka til viðeigandi hráefni í réttum skammtastærðum
Viðhafa hreinlæti við bakstur
Nota viðeigandi öryggisbúnað við bakstur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Baka kökur eða útbúa aðrar veitingar
Lesa mismunandi uppskriftir og vinna eftir þeim
Ganga frá áhöldum og hráefni sem notað hefur verið
Fara eftir almennum hreinlætiskröfum við bakstur
Fara eftir almennum öryggisatriðum við eldhússtörf
Námsmatið er einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og próf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.