Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Sérstök áhersla verður á fjölbreyttan hádegisverð með áherslu á hollustu og fljótlega og einfalda matargerð.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Mikilvægi hollrar næringar
Fjölbreyttu fæðuvali
Hreinlæti og frágangi við matargerð
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Útbúa einfaldan hádegisverð
Taka til viðeigandi hráefni í réttum skammtastærðum
Viðhafa viðeigandi þrifum og hreinlæti við matargerð
Nota viðeigandi öryggisbúnað við eldhússtörf
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Nýta sér viðeigandi heimilistæki
Útbúa fjölbreyttan hádegisverð
Lesa mismunandi uppskriftir og vinna eftir þeim
Ganga frá áhöldum og hráefni sem notað hefur verið
Fara eftir almennum hreinlætiskröfum
Fara eftir almennum öryggisatriðum
Námsmatið er einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og próf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.