Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla verður á að efla þekkingu nemenda á mismunandi starfsheitum. Einnig verða kynntar ýmsar atvinnugreinar og nemendum gefið tækifæri til að máta sig við þær, miðla eigin reynslu og verða upplýst um mismunandi starfsheiti.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Fjölbreyttum starfsheitum
Fjölbreyttum vinnustöðum
Mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Tengja viðgeigandi starfsheiti við vinnustaði
Taka þátt í umræðum um ákveðin starfsheiti
Sækja sér upplýsingar um ný og framandi starfsheiti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Þekkja mismunandi starfsheiti og átta sig á hlutverkum sem í þeim felst
Átta sig á mismunandi kröfum og/eða menntun sem liggja að baki ýmissa starfsheita
Námsmatið er einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.