Unnið er með ýmis tölvuforrit með sköpun að markmiði. Nemendur vinna með ljósmyndir, teikningar, form og liti. Þeir eru hvattir til að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn og fá tækifæri til að skapa tónlist, rit- og ljóð.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Að sköpunin felst í vinnuferlinu ekki síður en afrakstrinum
Mikilvægi þess að nota ímyndunaraflið í sköpunarferlinu
Að hægt er að skapa á ýmsa vegu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Að fara mismunandi leiðir í sköpunarferlinu
Að átta sig á því að hugmyndir annarra eru oft ólíkar eigin hugmyndum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Prófa sig áfram og vinna að sköpun sinni á fjölbreyttan hátt
Kynnast tölvuforritum sem nýta má við sköpun af ýmsu tagi
Efla sjálfstraust sitt og trú á eigin færni
Kynna verk sín fyrir öðrum
Leiðsagnarmat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum og mæting . Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.