Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með grunnatriði ritvinnslu. Áhersla verður á forritin Microsoft Word og Microsoft Power Point og notkunarmöguleikar þeirra kynntir. Meðal annars verður nemendum kennt að vinna með útlit texta, blaðsíðutal og efnisyfirlit.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Framsetningu texta í rituðu skjali
Ritun á stuttum textum
Mikilvægi þess að kunna að setja upp aðgengilegan texta, skjöl og kynningar af ýmsu tagi
Að það má alltaf bæta við kunnáttu sína á þessu sviði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Vinna með ritvinnsluforrit
Vinna með glæruforrit
Leita mismunandi leiða í vinnuferlinu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Senda frá sér vel upp sett skjöl og ritaðan texta
Efla sjálfstraust sitt
Útbúa kynningar fyrir aðra á skilmerkilegan og snyrtilegan hátt
Koma hugmyndum sínum á framfæri
Námsmatið er einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat og ástundun. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.