Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Nemendur gera ýmsar æfingar á stöðvum sem auka líkamlegan styrk, þol og liðleika þeirra.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Að fara ekki of geyst af stað
Að ýmsar hættur geta leynst í tækjasal
Að hreyfing er holl og góð fyrir líkamann
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Að nota fjölbreytt líkamsræktartæki
Að gera fjölbreyttar æfingar
Að bæta líkamlegt ástand
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Nýta sér styrktarþjálfun sem valkost í hreyfingu
Bæta líkamasástand sitt
Sækja tíma í líkamsræktarstöðvum og nýta sér þjónustu
Námsmatið getur verið fjölbreytt og einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.