Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Ýmsir flokkar tómstunda verða skoðaðar og kynntir. Fjallað verður um fjölbreytileika þeirra og hvernig hægt er að nota þær í þeim tilgangi að gefa lífinu enn meira gildi. Skoðaðar verða úti og inni tómstundir, tómstundir sem eru í skóla, í starfi, heima við og í lífinu.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Að til eru fjölbreyttar tómstundir
Að tómstundir geta verið ánægjulegar og hægt er að velja tómstundir við hæfi
Að tómstundir geta verið einungis til afþreyingar en líka haft menntunarlegt gildi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Að velja tómstund sem hentar honum
Að stunda samviskusamlega þá tómstundir sem valin hefur verið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Hafa yfirsýn yfir fjölbreyttar tómstundir
Meta og velja tómstund með hliðsjón af áhugasviði og hæfni
Skoða fordómalaust ný svið tómstunda
Námsmatið getur verið fjölbreytt og einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.