Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað verður um að sígilda tónlist og ýmis tónskáld sem hafa haft áhrif á samtímasöguna eða frá um 1930 til dagsins í dag. Einnig verður hlustað á ýmis tóndæmi sem tengjast efninu.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
NokkrumHvað felst í hugtakinu sígild sígildum tónskáldum
Fjölbreytileika hljóðfæra í sígildri tónlist
Uppbyggingu mismunandi hljómsveita
Nokkrum sígildum tónskáldum í samtímanum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Að þekkja ýmis hljóðfæri
Að nefna nokkur sígild samtímatónskáld
Að nefna nokkur sígild samtímaverk og lög
Að tengja tónverk og/eða tónlist við höfund
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Greina áhugasvið sín varðandi tónlist
Geta tjáð öðrum áhugasvið sín varðandi tónlist
Geta tekið þátt í umræðum um samtímatónlist
Geta hlustað fordómalaust á ýmis tóndæmi
Geta myndað sér skoðun á ýmsum tóndæmum og tjáð sig um hana
Námsmatið getur verið fjölbreytt og einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.