Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Í áfanganum þjálfast nemendur í undirstöðuatriðum leiklistar svo sem í framsögn, tjáningu, þ.e. að sviðsetja verk. Hægt er að tengja námið við vettvang og fara í leikhús.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Mikilvægi tjáningar
Mikilvægi framsagnar
Mikilvægi þess að læra texta
Að til eru aðal- og aukaleikarar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Að nýta sér upphitunar-, radd- og slökunaræfingar
Að beita rödd sinni á mismunandi hátt
Að tjá sig frjálst eða eftir leikstjórn
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Þekkja mismunandi gerðir leiklistar
Fara í leikhús og leggja sjálfstætt mat á verkið
Að leika á sannfærandi hátt
Námsmatið getur verið fjölbreytt og einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.