Í áfanganum verður fjallað um sögu kvikmyndanna, frá fyrstu verkum frumkvöðlanna til dagsins í dag. Fjallað verður um helstu tímabil, strauma og stefnur, þekkta framleiðendur, leikstjóra, leikara og leikkonur. Einnig verður fjallað um kvikmyndina sem áróðurstæki og sem leið til að skrá sögu okkar. Íslenskar kvikmyndir verða teknar sérstaklega fyrir. Áfanganum er ætlað að efla læsi nemenda á kvikmyndir, að þeir þekki til þróunnar kvikmyndarinnar sem listforms og sem afþreyingariðnaðar og að helstu áhrifavaldar séu þeim kunnir. Áfanganum er einnig ætlað að efla gagnrýna og skapandi hugsun og almenna þekkingu á kvikmyndaiðnaðinum.
A.m.k. 10 einingar í íslensku á 2. þrepi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þróun kvikmyndanna sem listforms og afþreyingariðnaðar
þróun íslenskra kvikmynda
helstu áhrifavöldum í hópi framleiðenda, leikstjóra og leikara
hvernig kvikmyndir eru nýttar til áróðurs og auglýsinga
gildi kvikmynda í skrásetningu sögunnar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tjá sig á skýran, gagnrýninn og skapandi hátt um þá þekkingu sem þeir öðlast í áfanganum
sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum við útfærslu sjálfstæðs lokaverkefnis
taka ábyrgan þátt í samræðum um samfélagslegar og menningarlegar aðstæður er koma fram í kvikmyndum
meta og greina hvernig áróðri og auglýsingum er komið til skila í kvikmyndum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja þróun kvikmyndanna og getað t.d. áttað sig á ýmsum vísunum í eldri myndir sem í þeim birtast
beita gagnrýnni hugsun þegar horft er á kvikmyndir. Metið með vikulegri gagnrýni nemenda á kvikmyndir, jafnt kvikmyndir að eigin vali sem valdar myndir
átta sig á mikilvægi kvikmynda í skrásetningu sögunnar og hvernig hægt er að afbaka söguna í kvikmyndum
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.