Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1412184413.61

    Almenn heimspeki
    HEIM1AH05
    1
    heimspeki
    almenn heimspeki
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áfanginn veitir nemendum innsýni í heimspeki og iðkun hennar, þjálfa þá í lestri heimspekitexta og þátttöku í heimspekilegri samræðu. Farið yfir fjölbreytileg viðfangsefni heimspekinnar, tæpt er á heimspekisögunni. Lagst verður í frjóar og skemmtilegar pælingar um málefni líðandi stundar. Hvað er platónsk ást? Hvað eru rök? Hvað er gott líf? Er hægt að svíkja en samt vera trúr?
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • rökum, hvernig þau eru skilgreind og hvernig þau eru metin
    • mikilvægum heimspekilegum hugtökum og hugmyndum úr heimspekisögunni
    • sögu vestrænnar heimspeki
    • helstu heimspekingum sögunnar og stefnum þeirra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina rökstuðning og forsendur hugmynda
    • setja fram spurningar og taka þátt í heimspekilegri umræðu
    • beita heimspekinni á ólík vandamál
    • taka þátt í heimspekilegri rökræðu, bæði með virkri hlustun og rökstuddri afstöðu
    • taka þátt í heimspekilegri rökræðu, bæði með því að beita gagnrýninni hugsun, virða skoðanir annarra og vera tilbúinn til að taka gagnrýni á uppbyggilegan máta.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita hugtökum og aðferðum heimspekinnar á eigin veruleika.
    • nota aðferðafræði heimspekinnar við úrlausn mála
    • • beita heimspekilegum hugtökum á daglega reynslu
    • taka þátt í gagnrýninni samræðu
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.