Ætlað byrjendum sem ekki hafa neina kunnáttu í tungumálinu. Megináhersla er lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins: Strax frá upphafi eru nemendur þjálfaðir í lesskilningi ásamt samskiptaþáttunum tali, hlustun og ritun. Áhersla er lögð á réttan framburð, uppbyggingu orðaforða og að þjálfa grunnatriði málfræðinnar. Fléttað er inn í kennsluna menningu spænskumælandi landa.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
almennum grunnorðaforða
framburði, áherslum og hljómfalli
grunnatriðum málfræðinnar / málkerfisins
menningu spænskumælandi landa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja talað mál þegar talað er hægt og skýrt
þekkja algengustu kveðjur og ávörp
skilja stutta texta með einföldum orðaforða, sem tengist honum, umhverfi hans og áhugamálum
taka þátt í einföldum samræðum
segja frá fjölskyldu sinni og sjálfum sér, nánasta umhverfi og daglegum athöfnum
skrifa stuttan texta
beita helstu málfræðireglum
vinna sjálfstætt og með öðrum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja einfaldar upplýsingar sem hann heyrir eða les
kynna sig og gefa upplýsingar um sig og fjölskyldu sína og aðstæður.
tjá sig á viðeigandi hátt eftir aðstæðum, t.d. með því að nota þérun eða viðeigandi kurteisisávörp
koma tilteknum upplýsingum á framfæri skriflega, t.d. á eyðublöð eða að skrifa einföld skilaboð
taka þátt í einföldum samræðum
Annareinkunn gildir 50% af lokaeinkunn og samanstendur af mati á munnlegri og skriflegri færni, lesskilningi og hlustun. Lokapróf gildir 50 %.