Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1415365896.23

    Spænska 2
    SPÆN1BB05
    45
    spænska
    Framhaldsáfangi
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun og fléttað er inn í kennsluna menningu spænskumælandi landa. Orðaforði er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð.
    SPÆN1AA05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná markmiðum áfangans
    • framburði, áherslum og hljómfalli
    • flóknari atriðum málfræðinnar en áður
    • menningu spænskumælandi landa
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál þegar talað er hægt og skýrt um hversdagsleg málefni
    • skilja lykilatriði í stuttum textum, leiðbeiningar og fyrirmæli
    • taka þátt í einföldum samræðum og bjarga sér við hversdagslegar aðstæður
    • tjá sig á einfaldan hátt um líðan sína, tilfinningar og viðhorf
    • halda uppi samræðum, t.d. að spyrja og svara um hversdagslega hluti
    • skrifa stuttan texta, eins og t.d. persónuleg bréf, dagbók eða boðsbréf
    • beita flóknari málfræðireglum en áður
    • vinna sjálfstætt og með öðrum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina upplýsingar og draga ályktanir af því sem hann les eða heyrir
    • tjá sig um tiltekin málefni eða taka þátt í samræðum sem krefjast aukins orðaforða
    • tjá sig á viðeigandi hátt eftir aðstæðum, t.d. eftir því við hvern er talað og við hvaða aðstæður
    • koma ákveðnum atriðum á framfæri skriflega í mismunandi tegundum af textum
    Námsmat samanstendur af mati á munnlegri og skriflegri færni, lesskilningi og hlustun.